Þann fyrsta nóvember síðastliðinn fór fram aðalfundur félagsins. Á hann mættu rúmlega tuttugu félagsmenn. Fundurinn fór fram með hefðbundum hætti, Magnús Sigurjónsson kynnti skýrslu stjórnar og lagði fram ársreikning félagsins. Valdimar Ólafsson fulltrúi fræðslunefndar kynnti starf nefndarinnar á árinu. Málefnalegar umræður sköpuðust á fundinum um störfin á árinu og hvernig mætti bæta úr því sem betur má fara .
Kosningar fóru fram og var kosið um formann, tvö sæti í aðalstjórn og tvö í varastjórn. Fór það svo að Magnús Sigurjónsson fékk stuðning fundarins til þess að gegna áfram formennsku í félaginu. Ólafur Árnason hlaut kosningu í aðalstjórn og tekur sæti í stjórn sem ritari félgagsins. Gísli Guðjónsson, Helga Claessen og Stefán Ágústsson endurnýjuðu öll umboð sitt til áframhaldandi stjórnarstarfa. Stjórnin þakkar fyrir góðan fund og hlakkar til komandi árs í góðu samstarfi við dómara félagsins.
Stjórn 2017 – 2018
Magnús Sigurjónsson, formaður.
Ágúst Hafsteinsson, gjaldkeri.
Ólafur Árnason, ritari.
Gísli Guðjónsson, aðalstjórn.
Ingibergur Árnason, aðalstjórn.
Helga Claesson, varastjórn.
Stefán Ágústsson, varastjórn.