
Fræðslunefnd gæðingadómarafélagsins stóð fyrir nýdómaranámskeiði í Þýskalandi á dögunum. Þeir Valdimar Ólafsson og Sindri Sigurðsson stóðu fyrir námskeiðinu fyrir okkar hönd og nutu halds og trausts Erlendar Árnasonar formanns GDLH.
Það hefur ekki verið þrautalaust að ná samstarfi við Þýskalandi en það horfir til betri vegar þar sem námskeiðið tókst afar vel og okkur þykir sérstaklega ánægjulegt að bjóða níu nýja gæðingadómara í Þýskalandi í okkar raðir. En þau eru:
Alexander Fedorov
Anna Lisa Zingsheim
Dieter Becer
Glenn Kessner
Jula Mann
Nicolas Fedorov
Ralf Wohlleib
Saskia Ruffert
Willi Becker
Til hamingju!