Dómaranámskeið á vegum GDLH

Fræðslunefnd Gæðingadómarafélags LH mun standa fyrir námskeiði fyrir ný- og landsdómara dagana 19-21 maí næstkomandi ef næg þátttaka næst. Nákvæm staðsetning liggur ekki fyrir að svo stöddu en námskeiðið verður að öllu óbreyttu haldið á höfuðborgarsvæðinu. Kostnaður við nýdómarapróf og gögn er 70.000 kr. og landsdómarapróf og gögn kostar  45.000 kr.

Þeir sem hyggjast taka þátt skulu hafa samband á netfang félagsins hið fyrsta:
gdlhdomarar@gmail.com
kv, fræðslunefnd GDLH

Secret Link