Month: maí 2018

Sportfengur

Þá ættu allir virkir dómarar að vera komnir með aðgang að Sportfeng. Sumir voru þegar komnir með aðgang og nota hann hér eftir sem áður. Hinir sem ekki hafa áður verið á Sportfeng eiga að hafa fengið sendan tölvupóst með aðgangs- og lykilorði. Ef einhverjir hafa ekki fengið hann sendan vinsamlegast hafið samband hið fyrsta. Við viljum ítreka að allir dómarar eiga að kynna sér vel hvernig kerfið virkar og kunna á það þegar mótin hefjast.

sportfengur

LH býður upp á námskeið í Sportfeng í kvöld og annað kvöld. Mikilvægt er að við dómarar lærum  á hugbúnaðinn áður en mót sumarsins hefjast. 
Skeifunni Léttishöllinni Akureyri kl. 18:00 mánudaginn 7. maí.
• Samskipahöllinni Spretti Kópavogi kl. 18:00 mánudaginn 7. maí.
• Hótel Stracta Hellu kl. 19:00 þriðjudaginn 8. maí.

Námskeið í notkun Sportfengs

Námskeið í notkun hins nýja mótakerfis Sportfengs, verður haldið mánudagskvöldið 7.maí í Samskipahöllinni í Spretti kl 18:00. Mikilvægt fyrir alla dómara sem ekki þekkja Sportfeng að mæta og læra á forritið, því öll mót sumarsins verða keyrð í gegnum það.

Sportfengur

LH mun standa fyrir Sportfengsnámskeiði mánudaginn kemur, þann 7. maí n.k. á Akureyri.  
Námskeiðið hefst kl. 18:00 í Skeifunni, veislusalnum í reiðhöll þeirra Léttismanna. Allir dómarar á Norðurlandi eru eindregið hvattir til þess að mæta námskeiðið þar sem öll mót sumarsins verða keyrð á Sportfeng og nauðsynlegt fyrir okkur dómara að kunna á kerfið.

Secret Link